Oct 5th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Við skötuhjú gistum á Hótel Búðum síðustu nótt. Tilefnið var að fyrirtækið sem Bjössi vann hjá fyrir nokkrum mánuðum (en var svo lagt niður hér á Íslandi) átti talsvert í starfsmannasjóði og var ákveðið að nota hann í þetta. Ronja fór í pössun til Róberts bróður um daginn og svo mömmu um nóttina og gekk það bara mjög vel, hún vakti t.d mömmu ekkert um nóttina.
Við vorum komin á Hótel Búðir um 4 leytið sennilega og komum okkur fyrir á herberginu, okkur leist mjög vel á það þar til ég fór að sturta niður og ekkert gerðist ! En svo lagaðist það bara að sjálfu sér svona ca klst seinna. Við fengum okkur svo smá göngutúr, æðisleg ströndin þarna með ljósum sandi.
Maturinn var mjög fínn, samt frekar nánasarlega skammtaður. Þetta var 5 rétta matseðill, í forrétt var humar, hreindýratartar og gæs, í aðalrétt var lambarifjur og í eftirrétt skyrkaka. Ég borðaði 2 humarskammta og svo var brauð með sem ég borðaði dálítið af, ég var samt ekki södd eftir þetta !
Ég var mjög ánægð með rúmin þarna, ekki þessi vanalegu grjóthörðu hótelrúm, hef aldrei skilið af hverju það er alltaf valið.
Veðrið í dag var ekki beint skemmtilegt svo við bara drifum okkur í bæinn.
Tjáðu þig »
Oct 4th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Í dag eru 4 ár síðan pabbi dó, ég bara trúi ekki að þetta sé orðið svona langt. Dagarnir í kringum þennan dag eru enn hálf erfiðir.
Ég er 28 ára og það eru komin 4 ár, svo það er hægt að setja þetta í kökurit, 6/7 af ævi minni hafði ég pabba, 1/7 ekki…. veit ekki af hverju ég fór að spá í þessu… ég og tölur…
1 hefur tjáð sig »
Sep 29th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Ég er á lífi og ekki blind, örvæntið ekki ;-)
Ég er bara búin að vera í nákvæmlega engu stuði til að vera að blogga. Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni síðustu 2 mánuði og mjög mikið stress búið að vera. Er að vonast til að það fari að hægjast á, áður en ég fæ hjartaáfall eða verð lögð inn á Klepp ;-) Ég ætlaði að taka meira sumarfrí í ágúst/september, á held ég einhverja 16 daga eftir en gat ekkert verið að fara frá. Er ekki að nenna að fara að eyða frídögunum í rigningu og roki eða þannig skemmtileg heitum, vonandi verður eitthvað skemmtilegra veður á næstunni eða ég geymi bara megnið fram á vor.
Laseraugnaðgerðin gekk vel, ég var alveg gífurlega stressuð og hefði sko alveg þegið meira en þessa hálfósýnilegu róandi töflu sem ég fékk ;-) Hugsaði allan tímann meðan ég beið hvað ég væri eiginlega að hugsa og að ég ætti nú bara að koma mér heim, hugsaði svo allan tímann í aðgerinni, guð minn góður hvað er ég að gera ! ;-) En svo bara áður en maður vissi af var aðgerðin búin og maður fann ekki fyrir neinu og sá allt, reyndar í talsverðri móðu.
Ég kom heim rétt eftir 3 leytið, klukkutíma eftir að ég mætti á svæðið í aðgerðina, slappaði bara af um kvöldið og horfði aðeins á sjónvarpið og setti dropa í augun á klukkutíma fresti. Næstu svona 3 daga var ég að setja dropa í mig nokkrum sinnum á dag en núna er þetta kannski 1-2 á dag (eftir mikla veru við tölvu og þegar ég er farin að þreytast) sem ég held að sé mjög vel sloppið. Það eru leifar af sjónskekkjunni vinstra megin sem fer dálítið í taugarnar á mér en læknirinn segir að þetta ætti ekki að há mér neitt, hitt augað er bara mjög gott.
Það er alger snilld að vera laus við gleraugun, ég á það þó enn til að fara að taka þau af mér fyrir sturtu og þreifa eftir þeim á náttborðinu á morgnana ;-)
En læt þetta duga í bili ;-)
4 hafa tjáð sig »
Sep 19th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Ég var í laseraugnaðgerð fyrr í dag, allt gekk vel, sé enn dálítið í móðu og fer í skoðun á morgun og þá kemur þetta allt betur í ljós hve vel hefur gengið. Segi nánar frá þessu við tækifæri ;-)
Ef einhver notar -4,75 linsur þá á ég næstum fullan pakka af þannig daglinsum og -4,5 sundgleraugu sem ég þarf ekkert á að halda lengur ;-)
3 hafa tjáð sig »
Sep 15th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Jeij, myndaalbúmið mitt er komið í lag svo ég get farið að setja inn fleiri myndir. Fengum nýjan router um daginn og búið að vera heljarinnar vesen að fá albúmið til að virka utanhúss.
Tjáðu þig »
Sep 13th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Svona fyrir þá sem eru þreyttir á að lesa um Ronju eða þá sem eru þreyttir á að lesa um mig þá er hún komin með sér síðu ;-)
Tjáðu þig »
Sep 10th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Við skötuhjú fórum ásamt Rikka og Jessicu í bústað hjá Kirkjubæjarklaustri síðustu vikuna í ágúst. Á sunnudeginum á leiðinni í bæinn stoppuðum við á Systrakaffi og fengum okkur að borða. Maturinn var fínn (mæli samt með vatni með matnum því lítil kókflaska kostar 250 kr.) en þjónustan var þannig að ég efast um að ég eigi eftir að upplifa annað eins yfir ævina.
Við löbbuðum inn og báðum um að fá að sjá matseðil því við vildum sjá hvað væri á boðstólum og hvort okkur langaði til að borða þarna. Hún rétti okkur 4 matseðla en Bjössi tók bara einn og hún tók hina tilbaka. Við ákváðum svo að okkur litist vel á þetta og settumst niður og stuttu síðar kom hún að borðinu og spurði hvort við værum tilbúin til að panta. Við sögðum að svo væri ekki og spurðum hvort við gætum fengið 3 matseðla í viðbót, hún varð hin fúlasta og sagði að við hefðum átt að taka alla 4 í upphafi ef við vildum öll fá matseðil (hún var erlend, gætum trúað þýsk svo hún talaði á ensku og ég man nú ekki hvernig hún orðaði þetta nákvæmlega) en fór og náði í 3 matseðla og henti á borðið hjá okkur og fór. Svo kom hún aftur og spurði hvort við værum tilbúin að panta og Bjössi fór að segja að við ætluðum að taka pizzu og hann ætlaði að fá kók, þá kom alger grybbusvipur á hana og hún sagði “first I take down the food, then the drinks!” og allt með algerri grybburödd en svo skrifaði hún nú allt á sama blaðið í sömu ferðinni svo ég veit ekki alveg hvað vandamálið var. Við vorum stórlega að íhuga að labba bara út en þetta var svo gífurlegt að þetta var bara hálf fyndið.
Þetta var svona “you had to be there” en hún var svo gjörsamlega dónaleg og leiðinleg að ég hef ekki vitað annað eins. Stökk ekki bros og ekki til orð eins og thank you, please eða nein önnur sem maður myndi búast við að heyra.
Annars var ferðin bara fín, skrifa um hana við tækifæri.
1 hefur tjáð sig »
Sep 9th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Ég er að lesa Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur og notkun hennar á “kýrskýr” er alveg að fara með mig. Ég ólst upp við að kýrskýr þýddi það sama og nautheimskur, s.s heimskur. Skv. þeim orðabókum sem ég hef gluggað í er þetta rétt, en aftur á móti eru flestir sem ég spyr á því að þetta þýði að vera mjög skýr eða eitthvað í þá veruna. Ég hef ekki áður orðið var við svona ranga notkun á orði í bókum áður. Ég skil ekki að útgefandi eða þeir sem prófarkalásu bókina skuli ekki hafa tekið eftir þessu. Finnst gæði höfundar og bókar bara dala ansi mikið út af þessu, því miður.
“Það eina sem er kýrskýrt í mínum huga er að ég átti þar engan hlut að máli”
“Hann talar en orðin sem hann raðar saman eru oftar en ekki innihaldslaus og ekki í neinu samhengi við það sem verið er að ræða. Mamma er hinsvegar alveg kýrskýr”
“Þó svo að textinn væri tormæltur og annað hvert orð óskiljanlegt hugtak úr læknisfræðinni var alveg kýrskýrt að mennirnir höfðu ekki kafnað í neinum eiturgufum”
1 hefur tjáð sig »
Aug 27th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Við “mæðgurnar” erum skráðar á hvolpanámskeið hjá hundaskólanum Hundalíf, fyrsti tíminn var í kvöld og var bóklegur. Við erum þrjár með hvolpa úr sama goti hjá Maríu, svo er ein með aðeins eldri cavalier tík og svo er ein sem er með systkini sem eru cavoodle systkini (blanda af Cavalier og Poodle) sem ég hef einmitt verið að grínast með að ég ætti að byrja að rækta því Ronja fer svo svakalega úr hárum, þau fara víst eitthvað úr hárum en ekkert eins svakalega og Cavalier.
Kostnaðurinn stóð dálítið í mér, kostar 24 þús að fara á þetta námskeið. En þegar maður hefur lokið því þá borgar maður bara hálf hundagjöld og svo fannst mér þetta bara sniðugt. Komst svo að því í gær að VR borgar helminginn úr svokölluðum fræðslusjóði. Alger snilld! Alger heppni að ein sem var þarna er að vinna hjá VR og sagði frá þessu.
1 hefur tjáð sig »
Aug 18th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Erum við ekki sætar saman ;-)

10 hafa tjáð sig »
Aug 12th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Það er alveg svakalega mikið af berjum á sumarbústaðalóðinni okkar og ég oft farið út að fá mér nokkur bláber. Ég tók svo eftir því að Ronja ákvað að prufa þetta líka og alltaf þegar hún var úti þá mátti sjá hana éta bláber og krækiber. Mér fannst þetta ýkt fyndið. Spurði dýralækninn hvort þetta væri í lagi og hún sagði að þetta væri fullkomlega eðlilegt. Ef þið sæuð matinn hennar og lyktuðuð af honum þá myndi ykkur ekki þykja skrýtið að hún væri að leita að einhverju bragðgóðu ;-) Við viljum helst ekki gefa henni neitt annað en þurrmatinn því annað færi illa í hana, hún hefur samt stundum fengið eina og eina gúrkusneið og finnst það æði.
Tjáðu þig »
Aug 11th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Ronja var í bólusetningu í morgun og er búin að vera voða aum í dag, vælir þvílíku sársaukavæli upp úr þurru. Veit ekki hvað nágrannarnir halda að við séum eiginlega að gera greyinu. Er loksins sofnuð undir rúmi og vona að hún jafni sig.
Cavalier hundar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir mat, eiga á hættu að fá bara niðurgang og læti. Þeir mega alls ekki fá lauk, rúsínur, vínber eða súkkulaði, gætu dáið út af því.
1 hefur tjáð sig »
Aug 5th, 2008 by Linda Rós in Almennt
Ronja hitti lítinn schnauzer hvolp áðan. Þau voru alveg svakalega sæt saman. Ég sagði eigandanum að hann mætti alveg skilja hann eftir ;-)
1 hefur tjáð sig »